top of page
Félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli
5515565
FJÖLBREYTT EFNI UM KRABBAMEIN Í BLÖÐRUHÁLSKIRTLI
Hér er birt fjölbreytt efni frá sérfræðingum, aðilum greindum með krabbamein, aðstandendum, af rannsóknum og frá öðrum aðilum. Hægt er að velja allt efni (All posts) eða ákveðna flokka s.s. reynsla, fræðsla, umræða, fyrirlestrar eða rannsóknir. Allt efni er á ábyrgð viðkomandi greinarhöfunda og endurspeglar ekki skoðanir eða stefnumörkun Framfarar. Þú getur skoðað allt eða valið flokk hér að neðan.

Search


Hellisbúi 2026 komið út!
Nýjasta útgáfa veftímarits Framfarar, Hellisbúi er komið út á hellisbui.is. Í tímaritinu eru fullt af góðum greinum um fyrstu skrefin til að fara í PSA próf og hvað PSA er, skemmtileg viðtöl, jeppaferð sem meðlimir hellisins fóru í, frábærar upplýsingar á Europa-Uomo, kynningar frá Krabbameinsfélagi Íslands, Ljósinu Brakkasamtökunum og margt fleira. Allar greinarnar má finna á hellisbui.is
May 31


Aðalfundur Krabbameinsfélagsins Framför 2026
Aðalfundur hjá Krabbameinsfélaginu Framför – félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendur – verður haldinn þriðjudaginn 5. maí 2026 klukkan 14 í húsnæði félagsins að Hverafold 1-3 í Grafarvogi í Reykjavík . Dagskrá aðalfundar: Kl. 14.00. Setning – Guðmundur Páll Ásgeirsson formaður Framfarar. Velja fundarstjóra og fundarritara. Kl. 14.05. Aðalfundarstörf. a. Ársskýrsla félagsstjórnar fyrir síðastliðið starfsár b. Ársskýrsla lögð fram til samþykktar. c.
Apr 20


Viðtal við Hólmfríði hjá Krabbameinsfélaginu
Hólmfríður Sigurðardóttir varaformaður og stjórnandi makafélaginu Traustir Makar var í mjög áhugaverðu viðtali hjá Krabbameinsfélaginu í tilefni af Mottumars um mikilvægi jafningjastuðnings við aðstandendur. Viðtalið má sjá í heild sinni á heimasíðu Krabbameinsfélagsins og mælum við með að kíkja á það!
Mar 7


Kynlífið, nándin og sambandið
Krabbameinsfélagið Framför kynnir námskeiðið Kynlíf, nánd og sambandið. Laugardaginn 14. mars 2026 klukkan 11 til 14 í Hverafold 1-3, 113 Grafarvogi – Hellinum. Námskeiðið Kynlífið, nándin og sambandið er ætlað körlum með krabbamein í blöðruhálskirtli og mökum þeirra. Markmiðið er að veita fræðslu og þekkingu um þau fjölbreyttu áhrif sem veikindi, meðferðin og bati geta haft á kynlífið, nándina og sambandið. Leiðbeinendur eru Ald ís Þorbjörg Ólafsdóttir sálfræðingur og ky
Mar 4


Europa-Uomo sótt heim
Fulltrúar Framför, Guðmundur Oddgeirsson og Stefán framkvæmdastjóri, héldu til Brussel á svokallaðan Winter School nú í febrúar til að sækja fyrirlestra og kynningar hjá Europa-Uomo. Þar var boðið uppá 25 fyrirlestra af ýmsum toga hjá sérfræðingum - svo sem Shared Decision Making þar sem kom fram að ef læknar taka ákvörðun með sjúklingi eru mun meiri líkur á betri bata og minni eftirsjá, margs konar rannsóknir, stöðuna í skimun & snemmgreiningu, þróun lyfja og tækja,...
Feb 18


Heimsókn frá Rafni Hilmarssyni
Góður gestur sótti okkur heim í Hellinn síðastliðin fimmtudag þegar Rafn Hilmarsson, yfirlæknir þvagfæraskurðdeild Landspítala, mætti og talaði við okkur. Alls mættu 34 karlar á fundinn og Rafn, sem gerði ráð fyrir að vera í klukkutíma gaf sér nægan tíma og var í rúman einn og hálfan tíma. Rætt var um hvað er að gerast í lækningamálum við blöðruhálskirtilskrabbameins og Rafn svaraði síðan spurningum af ýmsum toga. Lífleg og skemmtileg stund enda var klappað hraustlega fyrir h
Jan 30


Rafn læknir í Hellinum
Rafn Hilmarsson yfirlæknir þvagfæraskurðdeild Landspítala verður í Hellinum næsta fimmtudag - fimmtudaginn, 29. janúar, í Hverafold 1-3 í Grafarvogi klukkan 16. Erum mættir um klukkan 14 að hella uppá kaffi og raða kruðerí á disk, svo góðu lagi að koma fyrr og spjalla saman. Ekki skyldumæting, bara hittingur og þarf ekki að skrá sig. Tökum fyrir allt og ýmislegt. Í boði verður kaffi, vatn og Sæmundur en kannski eitthvað gott líka í tilefni þessarar góðu heimsóknar. Ef spurni
Jan 28


Framför í Mannlega þættinum
Krabbameinsfélagið Framför vakti athygli á Bláum nóvember og Bláa treflinum í Mannlega þættinum á Rás 1 hjá RÚV. Guðmundur Páll formaður og Hólmfríður varaformaður sögðu frá starfsemi Framfarar, makafélaginu Traustir makar og fleiru. Viðtalið má nálgast hér.
Nov 23, 2025


Blái göngudagurinn
Blái göngudagurinn var haldin í Heiðmörk sunnudaginn 9. nóvember síðastliðinn . Ætlunin var að labba á svæðinu við Borgarstóraplanið en þar var mikill klaki svo við færðum okkur niður í Rauðhóla. Guðmundur frá Fjallaför fór með okkur um söguslóðir með fræðandi upplýsingar, þar á meðal fjallasýn, sögu Rauðhóla, braggarústirnar og margt fleira. Skundi merkti alla staðina fyrir okkur svo við getum fundið þá aftur.
Nov 19, 2025
bottom of page