Vinnusmiðjan Kynlíf og nánd 21. nóvember – skráning hafin
Blár nóvember stendur nú sem hæst. Blað Bláa trefilsins kom út með Morgunblaðinu 5. nóvember og sama dag hófst sala á barmnælunni Bláa treflinum í apótekum Lyfju, Lyf og heilsu og Apótekarans og á bensínstöðvum N1 og Olís.
Vinnusmiðjan Kynlíf og nánd – laugardaginn 21. nóvember
Laugardaginn 21. nóvember kl. 11–14 heldur Krabbameinsfélagið Framför vinnusmiðjuna Kynlíf og nánd að Hverafold 1-3 í Reykjavík. Vinnusmiðjan er fyrir karla sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra. Tilgangurinn er að styrkja karla og pör í að takast saman á við þær breytingar sem geta orðið á kynheilsu vegna meðferðar.
Um 10–12 pör taka þátt og sérfræðingar fara yfir kynlíf og ekki síður nándina, sem er eitthvað sem vert er að gefa gaum. Við höfum haldið vinnusmiðjuna í nokkur ár, mætingin hefur verið góð og þátttakendur hafa farið heim fróðari. Léttar veitingar eru í hádegishléi.
Skráning: framfor@framfor.is

Lestu blað Bláa trefilsins 2026
Í blaði ársins segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, frá því hvernig hann greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli án þess að finna fyrir nokkrum einkennum, og hvetur karla til að ræða heilsuna við lækni.
Fleira í Bláum nóvember
Krabbameinsfélagið Framför verður einnig með opna fyrirlestra í nóvember og verða þeir kynntir þegar dagskráin liggur fyrir.
Það er alltaf hægt að hafa samband við okkur í síma 843 5565 eða á framfor@framfor.is. Við í félaginu höfum allir fengið krabbamein í blöðruhálskirtli og miðlum af eigin reynslu, hvort sem þú ert að velta fyrir þér fyrstu skrefunum eða ert nýbúinn að fá greiningu.



Comments