Aðalfundur Krabbameinsfélagsins Framför 2026
- 2 days ago
- 1 min read
Aðalfundur hjá Krabbameinsfélaginu Framför – félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendur – verður haldinn þriðjudaginn 5. maí 2026 klukkan 14 í húsnæði félagsins að Hverafold 1-3 í Grafarvogi í Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar:
Kl. 14.00. Setning – Guðmundur Páll Ásgeirsson formaður Framfarar.
Velja fundarstjóra og fundarritara.
Kl. 14.05. Aðalfundarstörf.
a. Ársskýrsla félagsstjórnar fyrir síðastliðið starfsár
b. Ársskýrsla lögð fram til samþykktar.
c. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram.
d. Ásreikningur lagður fram til samþykktar.
e. Lagabreytingar.
f. Ákvörðun félagsgjalda.
g. Kosning stjórnar (sbr. 6. gr.).
h. Kosnir tveir skoðendur reikninga til eins árs, og einn til vara.
i. Kosnir fulltrúar á aðalfund Krabbameinsfélags Íslands.
j. Starfsáætlun fyrir komandi starfsár lögð fram.
k. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár lögð fram.
Kl. 15.00. Önnur mál.
Kl. 15.30. Fundi slitið.
Nánar upplýsingar,
Stefán Stefánsson, Framkvæmdastjóri
Sími 8435565 eða stefan@framfor.is




Comments