top of page

Blár Nóvember hefst!

19 hours ago
1 min read

Nú er Blár nóvember genginn í garð og þá er átak með krabbamein hjá körlum eins og sjá má á vefsíðunni www.blaitrefillinn.is. 


Krabbameinsfélagið Framför er komið af stað með samtöl og möguleg viðtöl en 5. nóvember er gefið út aukablað, sem er dreift í aldreifingu Morgunblaðsins 5. nóvember.

Sama dag hefst sala á barmnælunni Blái trefillinn en hana má nálgast í verslunum Lyfju, Apótekarans, N1 og Olís.


Svo verðum við 21. nóvember með námskeiðið/vinnusmiðjuna Kynlíf&Nánd þar sem 10 eða 12 pör mæta og sérfræðingar fara yfir kynlíf og ekki síður nánd, eitthvað sem þarf að spá í.

Við höfum verið með þessi námskeið í nokkur ár, góð mæting og mjög upplýsandi.  Krabbameinsfélagið Framför verður einnig með opna fyrirlestra í nóvember og verða þeir kynntir þegar dagskráin er komin á hreint. 


Svo er auðvitað samtölin, hittingar og fleira.

Það er alltaf hægt að hafa samband við okkur í félaginu í síma 8435565 og netfanginu framfor@framfor.is þar sem karlar sem hafa tekist á við blöðruhálskirtilskrabbamein eru tilbúnir í spjall og spurningar - hvort sem fólk er að spá hvar/hvernig á að taka fyrstu skrefin eða þeir sem eru búnir að fá greiningu en við hjá félaginu höfum allir fengið krabbann og getum miðlað af reynslu okkar. 

Jafningjastuðningur frá mönnum sem hafa verið þarna kemur sterkur inn.



Comments


bottom of page