top of page

BLÖÐRUHÁLSAR/GÓÐIR HÁLSAR - UMRÆÐUHÓPUR

Stuðningshópur fyrir karlmenn sem hafa fengið meðferð við krabbameini í blöðruhálskirtli 

Næsti spjall- og fræðslufundur verður þriðjudaginn 17. janúar kl. 17:00 í Ljósinu á Langholtsvegi. Á þessum fundi er almennt spjall þar sem karlar ræða sína stöðu, upplifun og reynslu.

Góðir hálsar hafa sameinast Blöðruhálsum og fundir eru mánaðarlega í Ljósinu

Góðir hálsar er stuðningshópur fyrir karla sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og farið í meðferð. Góðir hálsar störfuðu í 20 ár undir umsjón Krabbameinsfélags Höfuðborgarsvæðisins, en er nú sameinaður öðrum sambærilegum hópi Blöðruhálsum fyrir karla með krabbamein í blöðruhálsi hjá Framför. Markmiðið með þessum stuðningshópi er að skapa grunn að góðum lífsgæðum í og eftir meðferð og fræða um hvernig gott er að takast á við lífið með þeim verkefnum sem þá koma. Þátttaka í starfi stuðningshópa er án endurgjalds. Fundir falla niður á meðan verið er að eiga við Cocid.

Jakob Garðarsson er í forsvari fyrir hópinn.

Tilurð Blöðruhálsa: „Ég hafði orð á því við Ernu, framkvæmdastjóra Ljóssins á sínum tíma, að mér fyndist vanta hóp fyrir karlmenn sem hefðu greinst með blöðruhálskrabbamein. Hugmyndin var að búa til hóp þar sem menn gætu miðlað af reynslu sinni og nýgreindir gætu fengið stuðning og fræðslu. Erna tók vel í hugmyndina og Jakob var sjálfur beðinn um að leiða starf hópsins. Margt er til umræðu á fundum hans og það leynir sér ekki að þörfin á slíkum samkomum er rík:

 

„Það er mikið áfall að fá þá greiningu að vera með krabbamein í blöðruhálsi. Það vakna margar spurningar tengdar aðgerð og meðferð, mögulegum eftirmálum aðgerðar sem geta herjað misjafnlega á menn. Þar geta verið um að ræða þvaglekavandamál, getuleysi og þunglyndi svo eitthvað sé nefnt. Við höfum fengið gesti á fundina til að greina frá einhverju markverðu sem tengist sjukdómnum, til dæmis kom Rafn Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir á síðasta fund okkar fyirir sumarfrí.”

 

Þegar er komin góð reynsla á starfsemina: „Ég held að menn hafi verið ánægðir með fundina og fundist þeir gagnast vel. Hér geta menn miðlað af reynslu sinni, opnað sig með eigin vandamál, fengið fræðslu og hvatningu frá öðrum. Hér finna menn til samkenndar.“

 

Stefnt er að því að hafa fundina að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Jakob hvetur alla til þess að mæta og segir ekki máli skipta hvort viðkomandi er nýgreindur, í meðferð eða er læknaður. Allir sem telja sig eiga erindi í hópinn eru velkomnir. Þátttaka í starfi stuðningshópa er án endurgjalds.

Ungir blöðruhálsar eru með Facebook hóp þar sem hægt er að fylgjast með og spjalla. Smelltu hér til að finna hópinn.

 

Fyrsti fundurinn Blöðruhálsa var haldinn 6. mars 2014.

Skráðu þig hér í stuðningshópinn Blöðruhálsa/Góða hálsa

bottom of page