5515565
Félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ FRAMFÖR - félag karla með krabbamein í blöðruhálsi og aðstandenda
Tilgangur, hugmyndafræði og stefnumótun
Krabbameinsfélagið Framför, félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálsi og aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra og aðstandendur. Aðal hvatamaður að stofnun félagsins var Oddur Benediktsson. Krabbameinsfélagið Framför starfar í dag á landsvísu sem sjálfstætt áhugamannafélag og er aðili að Krabbameinsfélagi Íslands og í samstarfi við Ljósið (einn stjórnarmaður kemur frá þeim).
Á aðalfundi hjá Krabbameinsfélaginu Framför þann 8. apríl 2019 var félagið endurreist fyrir forgöngu stuðningshópsins Frískir menn og kosin ný stjórn sem byrjaði að skilgreina og undirbúa gjörbreytta stefnumótun í uppbyggingu á framtíðarstarfi félagsins (sjá myndlista). Félagið samþykkti síðan á árinu 2020 öflugan grunn að nýrri hugmyndafræði og markvissa framtíðar stefnumótun um starfsemi félagsins (sjá stefnumótun).
Krabbameinsfélagið Framför styrkti umfangsmikið rannsóknarverkefni varðandi krabbamein í blöðruhálskirtli við Miðstöð Háskóla Íslands í lýðheilsuvísindum. Að tilstuðlan Framfarar var bókin „Cooking with food that fight cancer“ þýdd. Titill bókarinnar á íslensku er: Bragð í baráttunni – matur sem vinnur gegn krabbameini. Útgefandi var JPV útgáfa.
Stuðningshópar:
Félagið er með nokkra starfandi stuðningshópa:
-
Frískir menn – menn sem greinst hafa með blöðruhálskirtilskrabbamein en ekki farið í meðferð - skrá sig í hóp
-
Blöðruhálsar/Góðir hálsar – menn sem hafa greinst með blöðruhálskirtilskrabbamein og farið í meðferð - skrá sig í hóp
-
Traustir makar - í undirbúningi að stofna þriðja stuðningshópinn fyrir maka og aðra aðstandendur - skrá sig í hóp
Erlent samstarf:
-
Krabbameinsfélagið Framför er aðili að Evrópusamtökum blöðruhálskirtilsgreindra manna Europa UOMO sem er öflugur málsvari og stuðningssamtök BHKK samtaka í 27 Evrópulöndum - www.europa-uomo.org/.
-
Krabbameinsfélagið Framför er aðili að samtökunum Active Surveillance Patients International sem eru alþjóðleg samtök karla sem eru í Virku eftirliti á krabbameini í blöðruhálskirtli. Þráinn Þorvaldsson stjórnarformaður hjá Framför er einn af stofnendum samtakanna og gegnir þar stöðu sem "VP of International Operations" - https://aspatients.org/
Bæklingur um félagið: smella hér
Á aðalfundi 12. maí 2022 var kosin ný stjórn og í henni eru:
-
Formaður: Þráinn Þorvaldsson, alud@mmedia.is, sími 897-8464
-
Varaformaður: Guðmundur Páll Ásgeirsson
-
Gjaldkeri: Hinrik Greipsson, hinrik.greipsson@internet.is, sími 892-3355
-
Meðstjórnandi: Henry Granz
-
Varamaður: Steindór Ögmundsson
-
Varamaður: Þorsteinn Ingimundarson
-
Fulltrúi Blöðruhálsa/Góðra hálsa og frá Ljósinu: Jakob Garðarsson
-
Fulltrúi Frískra manna: Guðmundur Páll Ásgeirsson
-
Fulltrúi Traustra maka: Laila Margrét Arnþórsdóttir
Skrifstofa félagsins er að Hverafold 1-3, 112 Reykjavík: Opnunartími á skrifstofu er ekki fastur en stuðningssíminn 5515565 og tölvupósturinn framfor@framfor.is er alltaf opið. Kennitala: 620207-2330 - Reikningsnúmer: 0101-26-062027 - VSK númer: 14283
Ársskýrsla 2022
Ársreikningar 2022
Stjórn kosin á árinu 2022:

Þráinn Þorvaldsson
Varaformaður
Greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli 2005 og var í virku eftirliti í 14 ár. Geisla- og hormónahvarfsmeðferð 2019.

Hinrik Greipsson
Galdkeri
Greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli árið 2006 og fór til Svíþjóðar í meðferð sem nefnist Innri geislun (Brachy Therapy).

Jakob Garðarsson
Fulltrúi Blöðruhálsar/Góðir hálsar
Fulltrúi frá Ljósinu og hefur til fjölda ára stýrt Blöðruhálsunum virkum hópi karlmanna hjá Ljósinu með krabbamein í blöðruhálskirtli.

Þorsteinn Ingimundarson
Varamaður í stjórn
Kom inn í stjórn á árinu 2021.

Guðmundur Páll Ásgeirsson
Formaður
Kom inn í stjórn á árinu 2022. Greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli á árinu 2020 og er í virku eftirliti.

Henry Granz
Meðstjórnandi
Kom inn í stjórn á árinu 2021

Guðmundur Páll Ásgeirsson
Fulltrúi frá Frískir menn
Kom inn í stjórn á árinu 2021. Greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli á árinu 2020 og er í virku eftirliti.

Steindór Ögmundsson
Varamaður í stjórn
Kom inn í stjórn á árinu 2021.
Starfsfólk:

Guðmundur G. Hauksson
Framkvæmdastjóri
Fékk greiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli á árinu 2009 og fór í geislameðferð.

Stefán Stefánsson
Félagsmál og fjáraflanir
Fékk greiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli á árinu 2019 og fór í brottnám.