Kynlífið, nándin og sambandið
- 17 hours ago
- 1 min read
Krabbameinsfélagið Framför kynnir námskeiðið Kynlíf, nánd og sambandið. Laugardaginn 14. mars 2026 klukkan 11 til 14 í Hverafold 1-3, 113 Grafarvogi – Hellinum.
Námskeiðið Kynlífið, nándin og sambandið er ætlað körlum með krabbamein í blöðruhálskirtli og mökum þeirra. Markmiðið er að veita fræðslu og þekkingu um þau fjölbreyttu áhrif sem veikindi, meðferðin og bati geta haft á kynlífið, nándina og sambandið.
Leiðbeinendur eru Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir sálfræðingur og kynlífsráðgjafi og Lárus Jón Björnsson sjúkraþjálfari sem hefur sérhæft sig í karlaheilsu.
Þá verður fjallað um sjálfsmildi og mikilvægi þess fyrir bæði sjálfan sig, maka og í parasambandinu. Hvernig erum við sem kynverur og hvað hefur áhrif á kynlöngun. Þá skoðum við algengar breytingar á líkama og áhrif þess. Svo að sjálfsögðu fjöllum við um nánd, kynlífið og sambandið sjálft. Hvernig kynlífshandritið okkar er og hvaða breytingar við gætum þurft að gera og hvernig er það er hægt.
Námskeiðið verður sett upp í formi fyrirlestrar, þar sem kostur er gefin á spurningum.
Áhersla er lögð á trúnað og virðingu í samskiptum. Þó öll séu hvött til að vera virkir þátttakendur í fræðslunni þá mun enginn þátttakandi þurfa deila persónulegum upplýsingum um sig og sína reynslu fyrir hópnum. Öll einstaklings- og paraverkefni eru einungis fyrir einstaklingin eða parið sjálft og er ekki skilað inn til leiðbeinanda.
● Þátttaka í vinnusmiðju er án endurgjalds.
● Þátttaka takmarkast við 20 manns (10 pör). Ef vinnusmiðja fyllist verður önnur haldin í síðar.
● Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur tjái sig um persónuleg málefni.
Nánari upplýsingar og skráning: framfor@framfor.is og sími 8435565




Comments