top of page

Samfélag fyrir karlmenn með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendur

Hellirinn hjá Krabbameinsfélaginu Framför er samfélagslegt umhverfi fyrir karlmenn sem greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra maka og aðstandendur (nánar um viðburði).

 

Markmiðið með þessu samfélagi hjá Krabbameinsfélaginu Framför er að skapa öflugt félagslegt umhverfi fyrir karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra maka. Stuðla að samveru, samkennd, fræðslu og þekkingu varðandi leiðir og valkosti til að takast á við stöðuna með það að markmiði að ná fram góðum lífsgæðum á öllum stigum þess sem fylgir að upplifa krabbamein í blöðruhálskirtli.

Þegar fréttir um greiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli berast skiptir öllu máli að setjast niður og meta stöðuna vel. Sem betur fer er oftast hægt að lækna eða halda niðri krabbameini í blöðruhálskirtli með ýmsum hætti. Það sem skiptir mestu máli er að hámarka sín lífsgæði meðan á öllu þessu stendur.

04f3b15251e22f7c-1024x684.jpg

Öflugt stuðningsumhverfi
Krabbameinsfélagið Framför stuðlar með fjölbreyttum hætti að þekkingu og fræðslu um bestu lífsgæði fyrir karla sem greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra maka og aðstandendur. Stefnt er að því að byggja upp með tímanum öflugt umhverfi á netinu sem væri aðgengilegt fyrir félagsmenn án endurgjalds.

Samfélag fyrir maka
Krabbameinsfélagið Framför er að vinna að undirbúningi fyrir margvíslegar nýjungar s.s. umhverfi fyrir maka og aðstandendur (frá hausti 2020) þar sem makar þeirra sem eru greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli geta miðlað sinni reynslu

 

Á árinu 2021 verður farið af stað með félagslega hópa tengt léttum göngum, reglulegu kaffispjalli, sameiginlegum léttum kvöldverðum, hópum í tengslum við fótbolta, veiði eða golfi, fræðslu um mataræði, núvitund, jóga, hugleiðslu og fleira.

 

Einnig stendur alltaf til boða ráðgjöf, markþjálfun, jafningastuðningur og sálfræðiaðstoð í samstarfi við Krabbameinsfélagið (sími 866 9618 alla virka daga frá kl. 9:00 til 16:00).

1

Tilgangur í lífinu  getur minnkað eða horfið hjá aðilum sem greinast með krabbamein og þeirra aðstandendum. Framför er með markþjálfun og námskeið til að takast á við þetta.

2

Þega þú greinist með krabbamein getur lífsgleðin minnkað. Í meðferð skiptir miklu máli að hafa jákvætt hugarfar og Framför er með fjölbreyttan stuðning og fræðslu í þessum efnum.

3

Stór hluti af því að takast á við krabbamein er að skapa góðar venjur. Heilbrigt mataræði, góð hreyfing og sjálfstyrking skipta miklu máli. Framför er með stuðning og fræðslu í þessu.

Félagsleg virkni bætir lífið

Hafðu tilgang í lífinu

Skapaðu góðar venjur

Lifðu með tilhlökkun

Stuðningsumhverfi

Samfélagið hjá Krabbameinsfélaginu Framför:

hopar_godirhalsar.jpg

GÓÐIR HÁLSAR

Stuðningur eftir greiningu

Góðir hálsar er stuðningshópur fyrir karla sem hafa greinst með krabbamein í blöðru-hálskirtli. Mánaðarlegir fundir eru í hverjum mánuði í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

hopar_makahopur.jpg

MAKAHÓPUR

Samvera og miðlun

Makar aðila með greiningu geta átt erfiðara en sá greindi að takast á við verkefnið. Makahópurinn gefur þessum aðilum tækifæri til að heyra hvernig eigi að takast á við þetta.

hopar_friskirmenn2.jpg

FRÍSKIR MENN
Byggja upp lífið

Frískir menn er stuðningshópur fyrir þá einstaklinga sem greinst hafa með blöðru-hálskirtilskrabbamein og hafa möguleika á virku eftirliti og vilja fara þessa leið eftir greiningu á sínu krabbameini.

hopar_markthjalfun.jpg

TILGANGUR

Finna leið til jafnvægis

Að fá greiningu á krabbameini setur allt lífið úr skorðum. Framför er með stuðning, upplýsingagjöf og námskeið til að endurstilla viðhorf til lífsins og að finna endurnýjaðan tilgang.

hopar_friskirmenn.jpg

STUÐNINGSNETIÐ
Heyra í aðila með sömu upplifun

Ráðgjafaþjónusta Krabbameinsfélagsins er með jafningjastuðning fyrir krabbameins-greinda og aðstandendur. Stuðningsaðilar hafa greinst hafa með  krabbamein eða eru aðstandendur. Smella hér.

personal-1264693_960_720.jpg

HELSUHÓPUR
Matarræði, hreyfing og andleg ástundun

Heilsuhópurinn er hugsaður fyrir þá sem vilja taka þátt í léttum göngum og fá reglulega fræðslu um mataræði, læra jákvæða andlega hugsun, taka þátt í umræðu og einhverju skemmtilegu. 

bottom of page