Europa-Uomo sótt heim
- 1 day ago
- 1 min read
Fulltrúar Framför, Guðmundur Oddgeirsson og Stefán framkvæmdastjóri, héldu til Brussel á svokallaðan Winter School nú í febrúar til að sækja fyrirlestra og kynningar hjá Europa-Uomo.
Þar var boðið uppá 25 fyrirlestra af ýmsum toga hjá sérfræðingum - svo sem Shared Decision Making þar sem kom fram að ef læknar taka ákvörðun með sjúklingi eru mun meiri líkur á betri bata og minni eftirsjá, margs konar rannsóknir, stöðuna í skimun & snemmgreiningu, þróun lyfja og tækja, jafningjastuðnings-aðferðir, lífsgæði, gervigreind, hvað E-Uomo er að vinna í og margt fleira áhugavert.
Ljóst er að Framför getur nýtt mikið af því sem kom fram og nú er beðið eftir glærum svo hægt að setja upp og leggja fram meiri þekkingu.
Á myndinni eru Eric Briers formaður Europa-Uomo, Marko Koivuneva, Stefán Stefánsson og Guðmundur Oddgeirsson.





Comments