top of page

Taktu þátt í nethópi um Virkt eftirlit með krabbameini í blöðruhálskirtli

Við hjá Framför ætlum að setja af stað hóp sem hittist í spjalli á internetinu nokkrum sinnum á ári. Þar verður spjallað um: 

  • reynslu hvers og eins.

  • fróðleik sem aðilar hafa aflað sér um virkt eftirlit.

  • annað sem mönnum brennur á brjósti.

  • stundum taka þátt sérfróðir aðilar til kynna mál og svara fyrirspurnum.

Ef þú hefur áhuga á að aðstoða okkur við þetta eða taka þátt, vinsamlega skráðu þig hér að neðan.

Guðmundur Páll Ásgeirsson 2.jpg

Skráning á þátttöku í nethópi

Guðmundur Páll Ásgeirsson varaformaður hjá Krabbameinsfélaginu Framför og fyrrverandi námsstjóri leiðir starf stuðningshópsins Frískir menn (fyrir karla í virku eftirliti með krabbameini í blöðruhálskirtli).

Framför er aðili að samtökunum Active Surveillance Patients International sem eru alþjóðleg samtök karla sem eru í Virku eftirliti á krabbameini í blöðruhálskirtli.

 

Þráinn Þorvaldsson stjórnarformaður hjá Framför er einn af stofnendum Active Surveillance Patients og gegnir þar stöðu sem "VP of International Operations" - https://aspatients.org/

bottom of page