top of page

ERFÐAGJAFIR

Þú getur valið að ánafna hluta af eignum þínum til Framfarar í erfðaskrá þinni.  Erfðagjöf er því ekki gjöf sem þú gefur í dag heldur mun hún berast eftir þinn dag. Erfðagjafir geta skipt félag eins og Framför einstaklega miklu máli og bera vott um einstakan hlýhug og velvilja í garð félagsins.

Til þess að gefa erfðagjöf þarft þú að vera lögráða en nauðsynlegt er að gera erfðaskrá þar sem erfðagjöf er tilgreind. Hægt er að gefa eignir eins og fjármuni, húseign, hlutabréf, innbú eða annað. Til þess að tryggja að erfðaskrá sé gild samkvæmt lögum þá er mælt til þess að þú ráðfærir þig við lögfræðing. 

Allar nánari upplýsingar um erfðagjafir má finna á www.erfdagjafir.is

bottom of page