top of page

Krabbamein í blöðruhálskirtli – flóknara en virðist - málþing 20. mars

Málþing í tilefni af Mottumars um krabbamein í blöðruhálskirtli haldið þann 20. mars kl. 16:30 í húsnæði Krabbameinsfélagsins.



Krabbamein í blöðruhálskirtli – flóknara en virðist við fyrstu sýn.

Á málþinginu verður fjallað um blöðruhálskirtilskrabbamein út frá víðu sjónarhorni, áskoranir, árangur, framfarir, líðan og lífsgæði.

Málþing verður haldið þann 20. mars kl. 16:30 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Einnig verður boðið upp á streymi. Boðið verður upp á léttar veitingar.

DAGSKRÁ:

  • Skimun eða ekki - meðferðarkostir – ávinningur og aukaverkanir: Rafn Hilmarsson þvagfæraskurðlæknir á Landspítala.

  • Sýnilegar framfarir – staðan á Íslandi: Helgi Birgisson yfirlæknir á Rannsókna- og skráningarsetri Krabbameinsfélagsins.

  • Áhrif sjúkdóms og meðferðar á lífsgæði, líðan og aðstandendur – Þorri Snæbjörnsson, Ásgeir Helgason, Vigdís Eva Guðmundsdóttir sérfræðingar hjá Krabbameinsfélaginu.

  • Allir saman nú! Framför, félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli. Guðmundur Páll Ásgeirsson, formaður Framfarar.

  • Umræður og spurningar

Fundarstjóri – Steinar B. Aðalbjörnsson 

44 views0 comments
bottom of page