top of page

Blöðruhálsmistökin sem milljónir karla gera

Saðreyndin er sú að 1 af hverjum 2 bandarískum karlmönnum munu þjást af blöðruhálskirtils vandamálum um og eftir 50 ára aldurinn og 9 af hverjum 10 um sjötugs aldurinn.


Það er goðsögn að þetta sé óhjákvæmilegur þáttur í öldrun karla. Hvað sem því líður gætir þú verið einn af þessum heppnu mönnum sem hafa engin blöðruhálskirtilsvandamál! Það er vel þekkt staðreynd að margir karlmenn eru kærulausir þegar kemur að heilsu sinni. Kanski er þetta okkar „töff gaur“ viðhorf eða það að við erum svo uppteknir.


En okkur karlmönnum hættir alltof oft til að hunsa minni háttar heilbrigðis vandamál þar til þau verða að meiri háttar máli. Þetta á sérstaklega við þegar kemur að blöðruhálskirtils vandamálum.


Þú gætir enn hugsað sem svo að þetta kemur ekki fyrir mig, en líkurnar eru ekki góðar.

Trúðu mér, þú munt ekki vilja bíða þar til það er of seint vegna þess að almenn nálgun til að takast á við blöðruhálskirtils vandamál eru ekki síður vandamál. Ef ekki er tekið á orsökinni fyrir vandanum geta það jafnvel gert hlutina mikið verri.

STÓRA vandamálið með PSA prófið og blöruhálskirtilslyfin.

Á hverju ári gangast um 30 miljónir karlmanna undir prófun fyrir sérstöku blóðruhálskirtils mótefnavaka, ensím sem blöðruhálskirtillinn framleiðir. PSA prófið var viðurkennt af FDA árið 1994 og hefur almennt verið notað til þess að leita að blöðruhálskirtils krabbameini 

(Innskot: Af hverju er vera að leita – því það er örugglega að lokum hægt að finna allt mögulegt ef alltaf er verið að tékka og þá er fjandinn líka oft laus- og jafnvel farið að meðhöndla þetta með lyfjum sem jafnvel eru verri en sjúkdómurinn sjálfur).

Blöðruhálskirtils krabbamein hefur fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum, en íhugaðu tölurnar:

Það eru 16% líkur á því að bandarískir karlmenn verði greindir með blöðruhálskirtils krabbamein en einungis 3% möguleiki á því að þeir látist af völdum þess. Það er vegna þess að meirihluti blöðruhálskirtils krabbameins vex hægt.


Með öðrum orðum, þeir karlmenn sem eru það heppnir að ná hárri elli eru mikið lílegri til þess að deyja „með“ en ekki „af „ krabbameininu.

Jafnvel þá er prófið varla meira virkt en að kasta upp krónu...

Eins og svo margir hafa reynt að benda á í mörg ár núna, þá getur PSA prófið ekki fundið blöðruhálskirtils krabbamein og það sem er mikilvægast, það getur það ekki greint á milli þessarra tveggja tegunda af blöðruhálskirtils krabbameini - þeirrar sem mun drepa þig og þeirrar sem mun ekki gera það. Í staðinn sýnir prófið einungis hversu mikinn blöðruhálskirtils mótefnavaka karlmaðurinn hefur í blóði sínu.

Sýkingar og lausasölu lyf eins ibuprofen og góðkynja bólga í blöðruhálskirtlinum, getur allt valdið hækkun á PSA í blóði mannsins, en engir af þessum faktorum þýða krabbamein. Karlmenn sem fá lága tölu gætu samt verið að þróa með sér hættulegt krabbamein, á meðan að þeir sem fá háa tölu gætu hugsanlega verið algjörlega heilbrigðir.

Læknisfræðisamfélagið er smá saman að snúast gegn PSA skimuninni.

Á siðasta ári, birti The New England Journal of Medicine niðurstöður úr tveimur stærstu rannsóknunum sem gerðar hafa verið um skimunar meðferðir, einni sem var gerð í Evrópu og annarri sem gerð var í Bandaríkjunum. Niðurstöðurnar úr Bandaríku rannsókninni sýndu að yfir 7-10 ára tímabili, minnkaði skimunin ekki dánartíðnina hjá karlmönnum 55 ára og eldri. Evrópska rannsóknin sýndi örlitla lækkun á dánartíðni, en sýndi líka að það þyrfti að meðhöndla 48 karlmenn til þess að bjarga lífi eins karlmanns.

Það þýðir að 47 karlmenn geta að öllum líkindum ekki virkað kynferðislega lengur eða þurfa að vera stutt frá baðherberginu ( lausheldni á þvagi).

Ef þú ferð til læknisins þíns og kvartar undan því að þú þurfir alltaf að vera að fara að pissa eða að þú eigir við vandamála að stríða í svefnherberginu ( í kynlífinu), þá mun hann að öllum líkindum skrifa upp á lyf sem gæti hjálpað við að minnka eitthvað af þínum einkennum, en það hefur í för með sér mjög alvarlegar aukaverkanir.

Staðreyndin er ú að FDA varaði við því fyrir stuttu síðan að þessi lyf gætu í reynd aukið líkurnar á því að þú þróir með þér blöðruhálskirtils krabbamein. Til að byrja með, þá er hér ákveðin grunn þekking um það hvernig þetta virkar.

Í áratugi, hefur kenningin verið sú að blöðruhálskirtilsvandamál stafi af því að venjulegt testosterone breytist í testoterone sem er þekkt sem dihydrotestosterone eða DHT, sem veldur því að kirtillinn bólgnar. Þessi viðsnúningur verður á eðlilegan hátt þegar karlmenn eldast og er hvati frá ensími sem kallast 5-alpha reductase.

Þannig að lyfjafyrirtækin bjuggu til lyf sem stöðvar þetta náttúrulega ferli (Innskot: Kannski þetta sé bara eðlilegt breytingarskeiðið hjá karlmönnum sem búið er að sjúkdómsvæða?) með því að blokkera 5-alpha reductase.

Eins og svo oft er tilfellið með þröngsýna lyfjafræðilega nálgun við það með „leysa“ heilsufars vandamál, þá missir þessi meðferð marks.

Niðurstaðan er sú að blokkera 5-alpha reductase ensímið eitt og sér, getur gert málið verra vegna þess að annað ensím, sem kallast aromatase, kemur í staðinn og byrjar á að breyta testasteroninu (karlhormoninum) þínu í estrogen (kvenkyns hormón).

Ef að tilfellið er að þú vitir þetta ekki, þá er fjöldinn allur af ástæðum fyrir því að þú sem karlmaður VILT EKKI auka estrogen magn.

Hversvegna karlmenn ættu að forðast estrogen:

(Innskot: SOY inniheldur plöntu estrogen sem hermir eftir estrogen/kvenhormoninu )

Það veldur stækkun á blöðruhálskirtlinum, slekkur á kynhvötinni og veldur getuleysi. Það veldur einnig brjóstastækkun og ýtir undir þyngdaraukningu og hármissi.


Þannig getur þú séð hvers vegna blöðrhálskirtils lyf eru ekki góð langtíma lausn til að hafa blöðruhálskirtillinn heilbrigðan! Til þess að leysa vandamálið, þá yrði að blokkera BÆÐI 5-alpha reductase ensímið og aromatase ensímið.

Náttúrulegar lausnir (samt smá hængur þar á)

Ef að þú hefur skoðað náttúrulegar meðferðir til að bæta og styrkja heilbrigði kirtilsins, þá hefur þú án efa rekist á Saw palmetto þykkni. Þessi mikið rannsakaða hjálparhella fyrir kirtilinn er unnin úr berjum Saw palmette jurtarinnar.


Saw Palmetto er himnasending þegar lýtur að heilbrigði blöðruhálskirtilsins vegna þess að það er vísindalega sannað að hún hamli bæði 5-alpha reductase og aromatase, hindri framleiðslu bæði DHT og etrógen ( kvenhormon)

Staðlar í klínískum prófunum hafa sýnt fram á það að Saw Palmetto:

  • Nærir og verndar blöðruhálskirtilinn.

  • Hjálpar til við að minnka bólgu í blöðruhálskirtlinum.

  • Stuðlar að heilbrigðri kynhvöt

  • Flýtir fyrir bata eftir æfingar

  • Örvar heilbrigðan hárvöxt.

  • Það sem er best af öllu, Saw Palmetto virkar hjá um 90% notenda, hefur engar aukaverkanir eða víxilverkun og það er öruggt, jafnvel í mjög stórum skömmtum.

Því miður eru mörg Saw Palmetto fæðubótarefnin drasl.

Láttu ekki blekkja þig með því að allt Saw Palmetto sé eins. Nýlegar prófanir frá viðurkenndri rannsókarstofu sýndi að nærri því helmingur leiðandi vörumerkja fyrir Saw palmetto jurtakraft vantaði marktæka skilvirkni. Þannig að, hvernig ferð þú að því að vita hvort að þú ert að fá góða vöru eða bara flösku af einhverju sulli?

Ég ætla að ljóstra upp nokkrum iðnaðarleyndarmálum um Saw palmetto sem mun fá þig til að hugsa þig tvisvar um að kaupa ekki hvaða Saw Palmetto fæðubótaefni sem er.


Hér er listi yfir það sem þú vilt pottþétt forðast þegar þú kaupir Saw Palmetto fæðubótaefni:


SKORTIR STYRKLEIKA: Virka efnið sem gerir Saw palmetto svona skilvirkt finnst eingöngu í þroskuðum berjum plöntunnar og þessi ber verða að vera með mikinn styrk Mörg Saw palmetto fæðubótaefni eru unnin úr heilum, óþroskuðum berjum ný sprottnum, ásamt öðrum hlutum plöntunar, sem innihalda lítið sem ekkkert af virku efnum!

KEMÍSK LEYSIEFNI: Mikill meirihluti berjanna er unninn með sterkum leysiefnum en þau eru notuð til að vinna virka efnið úr berjunum.Þessi leysiefni eru hugsanlega eitruð og enda í hráefninu sem notað er til að búa til fæðubótaefnið.

VARNAREFNI OG EITUREFNI: Það eru miklir fjármunir sem fara í ræktun Saw Palmetto og ræktendur gera allt sem þeir geta til þess að ná sem mestri uppskeru. Margir þeirra nota gríðarlegt magn af varnarefnum og illgresiseyðum sem enda í plöntunni sem notuð er til að búa til Saw palmetto fæðubótarefnið.

BER FRÁ FJARLÆGUM LÖNDUM:  Saw Palmetto plantan er frumbyggi í Suðausturhluta Bandaríkjanna en samkvæmt útreikningum mínum þá er 99% af Saw palmetto fæðubótaefninu sem selt er í Bandaríkjunum unnið úr Saw palmetto berjum ræktuðum í Kína, þar sem eru eiginlega engar reglur til staðar sem tryggja örugga ræktun og vinnsluaðferðir.

6 Ráð til þess að finna góð fæðubótarefni

  1. Vertu viss um að fæðubótaefnið innihaldi daglegan skammt í það minnsta 300 mg af sterku Saw palmetto berja þykkni.

  2. Ef það er mögulegt, skaltu hringja í fyrirtækið og spyrja hvert sé upprunalegt land berjanna. Gakktu úr skugga um að það sé EKKI frá Kína.

  3. Finndu fæðubótaefni sem notar lífræn Saw Palmetto ber. Það útilokar möguleika á mengun frá varnarefnum og öðrum eiturefnum.

  4. Ef að fæðubótaefnið var framleitt með því að nota sterk leysiefni, þá gæti það valdið meiri skaða en ávinningi. Bestu fæðubótaefnin eru unnin með því að nota engin leysiefni .

  5. Ódýr fæðubótaefni hafa litla virkni, svo að þú endar á því að þurfa að taka 4-6 pillur á dag. Samanþjöppuð bætiefni munu gefa í það minnsta 300 mg í 1-2 pillum á dag. Það eykur þá líka líkurnar á því að þú munir eftir að taka þær daglega!

  6. Það er engin ástæða fyrir því að vera að yfirborga hágæða Saw palmetto bætiefni. Mín ráðlegging er að eyða ekki meira en 20 dollurum fyrir glasið.


Byrjaðu á að vernda blöðruhálskirtilinn þinn áður en það er of seint!

Má eg biðja þig um að vera ekki einn af þeim karlmönnum sem hunsa blöðruhálskirtils málefni. Mundu: 90% af karlmönnum munu þjást af blöðruhálskirtilsvandamálum um sjötugt. Það að grípa ekki til aðgerða núna getur leitt til seinni tíma vandamála, svo ekki sé minnst á óþægindin, sársaukann og minnkaða getu.

Ef að þú hefur prófað Saw palmetto áður og sást engan árangur, kannski er ástæðan sú að þú ert einn af þeim milljónum aðila sem var blekktur til þess að taka einskis nýt bætiefni. Notaðu þær ráleggingar sem ég gef hér að ofan og reyndu aftur!


Áhugaverð umræða inn á þessu vefsvæði.

286 views0 comments
bottom of page