top of page
8dc652d76f633e324136e7035429554d.jpg

Persónuvendarstefna

Framför er aðildarfélag að Krabbameinsfélaginu 
og byggir á sambærilegri persónuverndarstefnu.

1. Um Krabbameinsfélagið Framför

 

Krabbameinsfélagið Framför, Hverafold 1-3, 112 Reykjavík, www.framfor.is, hér eftir nefnt Framför, eru frjáls félagasamtök sem rekin eru með gjöfum, styrkjum, sjálfsaflafé og framlögum styrktaraðila. Markmið félagsins er að styðja við karlmenn sem greinst hafa með blöðruhálskirtilskrabbamein (BHKK), og aðstandendur þeirra og vinna að auknum upplýsingum og bættri þjónustu og að efla rannsóknir á krabbameini í blöðruhálskirtli, styðja í hvívetna baráttuna gegn því og efla heilsu þeirra sem fá greiningu.

Þeim sem leita til Framfarar og veita félaginu persónuupplýsingar sínar í eftirtaldar vinnslur er í engum tilvikum skylt að veita þær upplýsingar en þær eru jafnan forsenda þess að hægt sé að veita þeim þá þjónustu sem vinnslan lýtur að og afleiðingar þess að upplýsingarnar eru ekki veittar verða því að ekki reynist unnt að veita umbeðna þjónustu.

Engin vinnsla persónuupplýsinga hjá Framför felur í sér eða byggir á sjálfvirkri ákvarðanatöku, þ.m.t. gerð persónusniðs.

2. Hvað eru persónuupplýsingar?

 

Persónuverndarlögin skilgreina persónuupplýsingar sem þær upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Sem dæmi um persónuupplýsingar má nefna: Nafn, símanúmer, heimilisfang, netfang, kennitölu, heilsufarsupplýsingar o.s.frv. Gögn sem ekki eru persónugreinanleg falla ekki undir skilgreininguna.

Þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinga er Framför ábyrgðaraðili vinnslunnar og í hverri skráningu á vef félagsins þarf að samþykkja skráningu.

Þú átt margvísleg réttindi tengd vinnslu persónuupplýsinga, til dæmis rétt á því að vita hvort við vinnum með persónuupplýsingar um þig eða ekki og getur óskað eftir aðgangi að þeim. 

3. Persónuupplýsingar sem Framför vinnur með vegna vefsvæða sinna og vefverslunar

 

3.1 Almennt

Framför rekur nokkur vefsvæði sem tengjast starfsemi félagsins. Þar má nefna framfor.is, blaitrefillin.is, framforiheilsu.is og framforilifsgaedum.is.

Við notum mælingartól frá Google og Facebook í þeim tilgangi að afla almennra upplýsinga um notkun vefsvæðanna (Google Analytics) og til að mæla árangur okkar markaðsstarfs (Facebook Pixel og tengingar við auglýsinganet Google). Þessi tól skrá og vinna með IP-tölur sem heimsóknir stafa frá og tímasetningar heimsókna og eru upplýsingarnar fengnar frá þeim vélum sem heimsækja vefsvæðin. Upplýsinganna er aflað með svonefndum vefkökum en þessar vefkökur eru valfrjálsar og geta þeir sem nota vefsvæðin afþakkað notkun þeirra. Vefkökur eru einnig notaðar til að tryggja rétta virkni vefsvæðanna, svo sem til að passa að réttir hlutir haldist í innkaupakörfu þegar farið er milli vefsíða eða að notendur geti skráð sig inn á vefsvæðin. Vefkökurnar hafa skamman líftíma og framangreindar persónuupplýsingar sem félagið vinnur með eru gerðar ópersónugreinanlegar eftir að unnin hefur verið úr þeim tölfræði eða heimsókn lýkur en aldrei þó lengur en tveimur vikum eftir að þeirra var aflað.

Þessar mælingar sýna okkur fjöldatölur og samtölur varðandi t.d. aldur og kyn notenda hvers vefsvæðis en eru ópersónugreinanlegar í okkar notkun, þótt Facebook og Google búi yfir meiri upplýsingum um eigin viðskiptavini þeirra að baki þeim fjöldatölum.

Þó að við höfum ekki upplýsingar um hvaða einstaklingur er á bak við tiltekna heimsókn á vefsvæði okkar nema þeir gefi okkur upp þær upplýsingar en fyrir viðskiptavini Facebook sem eru eða hafa nýlega verið innskráðir á samfélagsmiðilinn getur Facebook tengt upplýsingar um heimsókn á okkar vef beint við viðkomandi Facebook notanda. Með sama hætti geta auglýsingakerfi Google tengt notkunarupplýsingar við þá persónuprófíla sem þau búa yfir, prófíla sem eru ýmist nafnlausir eða innihalda persónurekjanlegar upplýsingar á borð við nafn, netfang eða símanúmer.

Heimild Framfarar til að stunda framangreinda vinnslu persónuupplýsinga, þ.e. að stunda vefgreiningu og tryggja nauðsynlega virkni vefsvæða sinna, er sú að félaginu sé það nauðsynlegt vegna lögmætra hagsmuna sinna, nánar tiltekið þeirra að geta veitt notendum vefsvæðanna betri þjónustu og geta tekið upplýstar ákvarðanir um fyrirkomulag vefsvæðanna.

Vefnotendur geta á flestum vefjum Framfarar sent okkur gögn sem innihalda persónupplýsingar, til dæmis við bókun viðtals eða skoðunar, með því að senda okkur ábendingu um efni eða senda okkur fyrirspurn.

Loks er hægt að nota vefsvæði félagsins til að leggja af mörkum stakan styrk, kaupa minningarkort, skrá sig í stuðningshópa, sem styrktarvin eða sem félaga. Þær upplýsingar sem veittar eru í tengslum við þær vinnslur eru geymdar í örruggum gagnagrunni sem viðurkenndur er af persónuvernd.

3.2 Vefverslun Krabbameinsfélagsins Framfarar

Þegar vörur eru keyptar í vefverslun okkar biðjum við notandann sjálfan um þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að geta afgreitt pöntunina (nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang, kennitölu og greiðsluupplýsingar).

Vefverslun Framfarar er í verslanakerfi Wix.com, Inc. Í vefversluninni er unnið með þær upplýsingar sem notendur gefa upp í kaupferlinu auk tæknilegra upplýsinga um þær vélar sem notendur nota til að versla, þ.e. IP tölur þeirra og tegundir vafra. Wix notar þessar upplýsingar m.a. til að birta yfirlit yfir notkun í vefversluninni og gæti einnig notað þær t.d. til að flýta fyrir skráningu ef sami einstaklingur kaupir vörur aftur.

Gögn WIX eru vistuð í Evrópu þar sem lög teljast veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd í skilningi evrópsku persónuverndartilskipunarinnar (GDPR). 

Greiðslur í vefverslun fara í gegnum greiðslukerfi viðurkenndra greiðsluveitna s.s. Valitor og hvorki WIX né kerfi Framfarar hafa aðgang að greiðslukortanúmerum.

Starfsmenn Framfarar hafa aðgang að framangreindum persónuupplýsingum tengdum kaupum gegnum kerfi WIX til þess að geta afgreitt pantanir, í bókhaldstilgangi og til að geta haft samband við viðskiptavin ef upp koma vandamál eða ef hann óskar eftir að haft verði samband við hann vegna frekari stuðnings við félagið. Félaginu er því nauðsynlegt að vinna með upplýsingarnar til að efna samning við notendur vefverslunarinnar um kaup á vörum í henni og til að uppfylla lagaskyldur. Upplýsingar um sölu í vefversluninni geymir félagið í samræmi við skyldur sínar samkvæmt bókhaldslögum en í þeim er kveðið á um að geyma skuli bókhaldsupplýsingar í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.

3. Persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið Framför vinnur um styrktaraðila

Framför hefur lögmæta hagsmuni af því að geta tekið við fjárstyrkjum til starfseminnar og halda góðum tengslum við þá sem sýna áhuga á því að styðja starfsemi og málstað félagsins. Byggt á þeim hagsmunum viðheldur félagið skrá með tengiliðaupplýsingum sem þeir sem gerast stuðningsaðilar veita félaginu (nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang, kennitölu og greiðsluupplýsingar) þar til viðkomandi óskar eftir því að vera tekinn af þeirri skrá.

3.2 Stakir styrkir og Styrktarvinir

Styrkja má Framför með eingreiðslu eða skrá sig sem Styrktarvin í gegnum vef félagsins, með símtali eða skráningu í afgreiðslu félagsins.

Beðið er um þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að geta gengið frá greiðslu, brugðist við mögulegum vandamálum í greiðsluferlinu, uppfyllt bókhaldslög og viðhaldið skrá um Styrktarvini félagsins. Greiðslur fara í gegnum greiðslukerfi og kerfi Framfarar vista engin greiðslukortanúmer.

Fyrir utan upplýsingar í framangreindri stuðningsaðilaskrá og í vörslu bókhaldsupplýsinga þá eru þær upplýsingar sem eru geymdar tímabundið í vefumsjónarkerfi félagsins eftirtaldar:

  • Nafn, heimili, póstnúmer, staður, netfang og símanúmer verðandi Styrktarvina

  • Upphæð mánaðarlegs framlags
     

Einnig geta einstaklingar styrkt félagið með valgreiðslum í banka eða greitt áheit eða styrk með því að senda SMS eða hringja í styrktarnúmer.

Þá geta einstaklingar styrkt Framför í gegnum þriðja aðila, svo sem með því að gefa framlag á vefsíðu þriðja aðila. Greiðslunni er miðlað til félagsins en félagið vinnur hins vegar ekki frekar með upplýsingar um greiðanda nema hann óski eftir því.

4. Persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið Framför vinnur um starfsmenn, verktaka og sjálfboðaliða.

 

Framför vinnur með persónuupplýsingar sinna starfsmanna, verktaka og annarra sem fá greitt fyrir störf í þágu félagsins á grundvelli viðkomandi samninga (t.d. ráðningar- eða verktakasamnings).

Þær persónuupplýsingar sem um ræðir eru tengiliðaupplýsingar viðkomandi (nöfn, heimilisföng, símanúmer, kennitölur, símanúmer og netföng), reikningsupplýsingar og aðrar viðeigandi upplýsingar sem tengjast störfunum, þ.e. upplýsingar hvað varðar starfsfólk um launakjör, viðveru, orlof, starfstengd réttindi og framgang í starfi og um samningskjör verktaka og efndir á samningum við þá. Upplýsinganna er aflað frá viðkomandi starfsfólki og verktökum og viðhaldið með samkeyrslu við tengiliðaupplýsingar í þjóðskrá. Upplýsingar þessar eru notaðar til að hægt sé að uppfylla framangreinda samninga og til að uppfylla lagaskyldur félagsins sem vinnuveitandi og verkkaupi þjónustu, auk reglna hvað varðar samþykki og greiðslu reikninga. Eins og að framan greinir ber félaginu skylda samkvæmt bókhaldslögum til að geyma bókhaldsupplýsingar í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.

Gögn um starfsmenn þ.e launavinnslur og upplýsingar ásamt launagreiðslum geymast eftir að starfsmenn hafa hætt störfum til að geta staðfest fyrir þá upplýsingar um starfsferil og svarað fyrirspurnum þeirra. Upplýsingar þessar eru ekki notaðar í öðru skyni eftir að störfum lýkur. Félagið vinnur með persónuupplýsingar sjálfboðaliða félagsins eftir því sem við á í hverju verkefni fyrir sig.

Sjálfboðaliðar í Stuðningsneti félagsins:

Þær persónuupplýsingar sem um ræðir eru nafn, símanúmer, netfang, tegund veikinda og reynsla til að geta betur sinnt jafningjastuðningi.

Upplýsingarnar eru geymdar meðan aðili er sjálfboðaliði og ekki notaðar í öðru skyni eða eftir þann tíma.

5. Bókanir, fyrirspurnir og ábendingar

 

Þær persónuupplýsingar sem Framför vinnur með vegna neðangreindra erinda eru tengiliðaupplýsingar, þ.e. nöfn viðkomandi, nema um nafnlausa fyrirspurn og ábendingu sé að ræða, símanúmer og/eða netfang og tilefni erindis. Unnið er með þessar upplýsingar í þeim tilgangi að geta orðið við óskum eða ábendingum hins skráða sjálfs og geta veitt honum þá þjónustu sem hann óskar eftir. Vinnslan er því nauðsynleg til að efna samning sem hinn skráði er aðili að eða til að gera ráðstafanir að beiðni hins skráða.

 

Bókanir

Upplýsingar sem notendur gefa upp við bókun skoðana, viðtala og skráningu á námskeið og viðburði berast þeim starfsmönnum félagsins sem halda utan um bókanir. Aðrir starfsmenn hafa ekki aðgang að þeim og upplýsingarnar eru ekki notaðar í öðrum tilgangi.

Fyrirspurnir og ábendingar

Sama gildir um fyrirspurnir sem sendar eru í gegnum vefi Framfarar, þær berast einungis þeim starfsmönnum sem taka á móti fyrirspurninni og eftir því sem við á til starfsmanna sem fyrirspurnin beinist til.

Milliliður við bókanir í gegnum vefi Framfarar og fyrirspurnir sendar í gegnum vefi þess, er vefkerfi þjónustuaðila okkar sem hýst er í skýjalausn innan Evrópu (EES). Innsendum gögnum er sjálfkrafa eytt úr vefkerfinu að 180 dögum liðnum og þar fer ekki fram nein frekari söfnun eða úrvinnsla gagna.

6. Réttindi þín varðandi persónuupplýsingar sem Krabbameinsfélagið Framför vinnur

 

Réttur til upplýsinga

Þú átt rétt á upplýsingum um eftirtalin atriði um vinnslu persónuupplýsinga um þig, hvort sem upplýsinganna er aflað frá þér eða annars staðar frá: Upplýsingar um ábyrgðaraðila vinnslunnar, samskiptaupplýsingar persónuverndarfulltrúa, upplýsingar um tilgang vinnslu, heimild til hennar og viðtakendur persónuupplýsinganna, ef einhverjir eru. Þá átt þú rétt á upplýsingum um geymslutíma persónuupplýsinganna, hver réttindi þín séu varðandi vinnsluna og hvort til standi að vinna upplýsingarnar frekar í öðrum og óskyldum tilgangi.

Þessa upplýsingaskyldu leitast Framför við að uppfyllla með því að setja fram og viðhalda þessari persónuverndarstefnu, auk frekari upplýsingagjafar til hinna skráðu eftir því sem hægt er að koma henni við.

Réttur til aðgangs

Þú átt rétt á því að vita hvort við vinnum persónuupplýsingar um þig eða ekki og getur óskað eftir aðgangi að þeim upplýsingum.

Vegna þess hve viðkvæmar persónuupplýsingar Framför vinnur með er unnið eftir ströngum vinnureglum varðandi óskir um aðgang að eigin persónupplýsingum.

Ef þú vilt óska eftir aðgangi að eigin persónuupplýsingum þarf að fylla út viðeigandi eyðublað og afhenda það í Hverafold 1-3 112 Reykjavík eða senda með tölvupósti á netfangið framfor@framfor.is.is. Nauðsynlegt er að framvísa gildum persónuskilríkjum þegar beiðni er lögð inn.

Í framhaldinu verður haft samband við þig varðandi frekara fyrirkomulag á miðlun upplýsinganna til þín. Leitast er við að afhenda gögn innan mánaðar frá mótttöku beiðnarinnar en að öðrum kosti verður þér tilkynnt að töf verði á afhendingu og gerð grein fyrir hvaða ástæður séu fyrir henni. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir varðandi meðferð persónuupplýsinga eða persónuverndarstefnu félagsins hvetjum við þig til að hafa samband við okkur í síma 5515565 eða senda tölvupóst til persónuverndarfulltrúa okkar gegnum netfangið framfor@framfor.is.

Ef þú ert ósátt/ósáttur við vinnslu félagsins á persónuupplýsingum getur þú sent erindi til Persónuverndar.

Réttur til leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar, andmæla og til að flytja eigin gögn

Þú átt rétt til að fara fram á það við ábyrgðaraðila að láta leiðrétta persónuupplýsingar þínar, eyða þeim eða takmarka vinnslu þeirra hvað þig varðar eða til að andmæla vinnslu, auk réttarins til að flytja eigin gögn.

Réttur til að afturkalla samþykki

Í þeim tilvikum sem vinnsla persónuupplýsinga þinna byggir á samþykki þínu hefur þú rétt til að draga samþykki þitt til baka hvenær sem er, án þess þó að það hafi áhrif á lögmæti vinnslu á grundvelli samþykkisins fram að afturkölluninni.

Réttur til að leggja fram kvörtun

Eins og fram kemur hér að framan getur þú leitað til persónuverndarfulltrúa félagsins ef þú hefur athugasemd eða fyrirspurn vegna vinnslu persónuupplýsinga þinna. Þá átt þú ætíð rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna vinnslunnar. Skrifstofa Persónuverndar er að Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík, símanúmer hjá stofnuninni er 510 9600 og netfang postur@personuvernd.is.

7. Eftirfylgni með persónuverndarstefnu Krabbameinsfélagsins Framfara

Frumútgáfa persónuverndarstefnu félagsins var samþykkt af stjórn félagsins þann 09.03. 2023. Gildandi persónuverndarstefna hverju sinni er birt á vef félagsins,www.framfor.is.

Framför áskilur sér rétt til að uppfæra persónuverndarstefnu sína, til dæmis ef breytingar verða á því hvernig unnið er með persónuupplýsingar eða ef þörf reynist á að skýra betur einstaka liði.

Persónuverndarstefna þessi var síðast uppfærð 9. mars 2023.

bottom of page