top of page

UM FRAMFÖR - félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda

Tilgangur, erlent samstarf og stjórn

Framför, samtök karlmanna með krabbamein í blöðruhálsi og aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra og aðstandendur. Aðal hvatamaður að stofnun félagsins var Oddur Benediktsson. Framför starfar í dag á landsvísu sem sjálfstætt áhugamannafélag og er aðili að Krabbameinsfélagi Íslands. 

​

Framför styrkti umfangsmikið rannsóknarverkefni varðandi krabbamein í blöðruhálskirtli við Miðstöð Háskóla Íslands í lýðheilsuvísindum. Að tilstuðlan Framfarar var bókin „Cooking with food that fight cancer“ þýdd. Titill bókarinnar á íslensku er: Bragð í baráttunni – matur sem vinnur gegn krabbameini. Útgefandi var JPV útgáfa. 

​

Stefnt er að því að félagið hafi umsjón með stuðningshópum BHKK greindra og þeir verði hluti af starfsemi félagsins:

​​

  1. Frískir menn – menn sem greinst hafa með BHKK en ekki farið í meðferð.

  2. Góðir hálsar – menn sem hafa greinst með BHKK og farið í meðferð.

  3. Aðstandendur - stefnt er að því að stofna þriðja stuðningshópurinn fyrir maka og aðra aðstandendur.

 

Framför er aðili að Evrópusamtökum blöðruhálskirtilsgreindra manna Europa UOMO sem er öflugur málsvari og stuðningssamtök BHKK samtaka í 27 Evrópulöndum - https://www.europa-uomo.org/.  

​

Á aðalfundi Framfarar 8. apríl 2019 var félagið endurreist fyrir forgöngu stuðningshópsins Frískir menn og kosin ný stjórn sem hefur verið að skilgreina og undirbúa stefnumótun í uppbyggingu á framtíðarstarfi félagsins. Í framhaldi af þessari vinnu var lögum félagsins breytt og ný stjórn kosin 17. október 2020.

​

Stjórn sem kosin var 17. október 2020:

​

  • Formaður: Þráinn Þorvaldsson, alud@mmedia.is, sími 897-8464 

  • Gjaldkeri: Hinrik Greipsson, hinrik.greipsson@internet.is, sími 892-3355

  • Meðstjórnandi: Guðmundur Örn Sverrisson

  • Fulltrúi Góðra hálsa: Jakob Garðarsson

  • Fulltrúi Friskra manna: Guðmundur Einarsson
     

  • Framkvæmdastjóri: Guðmundur G. Hauksson, gudmundur@framfor.is, sími 8435565

  • Skrifstofa Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík: Opin mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 13:00 - 16:00 - Sími 5515565

​

Stjórn

​

​

Á aðalfundi 5. maí 2026 var kosin ný stjórn og í henni eru:

​

  • Formaður: Guðmundur Oddgeirsson

  • Varaformaður: Hólmfríður Sigurðarardóttir

  • Gjaldkeri: Finnbogi Gústafsson

  • Meðstjórnandi: Guðmundur Páll Ásgeirsson

  • Meðstjórnandi: Jakob Ragnar Garðarsson

  • Meðstjórnandi: Hallur Illugason

  • Meðstjórnandi: Sigurgeir L. Ingólfsson

  • Varamaður: Þráinn Þorvaldsson

  • Varamaður: Henry Granz

  • Varamaður: Ólafur Arnalds

  • Varamaður: Gunnar Skagfjörð Gunnarsson

  • Varamaður: Gylfi Gunnarsson

​

Framkvæmdastjóri:  Stefán Stefánsson, stefan@framfor.is sími 8435565
 

​

Skrifstofa félagsins er að Hverafold 1-3, 112 Reykjavík: Opnunartími á skrifstofu er ekki fastur en stuðningssíminn 5515565 og tölvupósturinn framfor@framfor.is er alltaf opið. Kennitala: 620207-2330 - Reikningsnúmer: 0101-26-062027 - VSK númer: 14283

​​

Ársskýrsla 2025

Ársreikningar 2025

​

Ársskýrsla 2024

Ársreikningar 2024

​

Ársskýrsla 2023

Ársreikningar 2023

​

Ársskýrsla 2022

Ársreikningar 2022

​

Ársskýrsla 2021

Ársreikningar 2021

​

Ársskýrsla 2020

Ársreikningar 2020​​​

​

Stjórn kosin á árinu 2026:

FRAMFÖR VINNUR AÐ...

bottom of page