top of page

Góður styrkur frá Oddfellowstúkunni Þorlákur helgi

Oddfellowstúkan Þorlákur helgi í Hafnarfirði styrkti Krabbameinsfélagið Framför veglega á síðasta ári og í vikunni kom Jörgen Pétur Lange Guðjónsson á fund félagsins til að veita styrkinn formlega.


Úr varð góður fundur þar sem tekin var mynd af Þráni Þorvaldssyni fyrrum formanni, Jörgen og Guðmundi Pál Ásgeirssyni formanni félagsins. Einnig var farið yfir hvað Framför gerir, hvernig gengur og fleira.


Kærar þakkir fyrir stuðninginn, hann veitir okkur styrk til góðra verka og bestu kveðjur úr "Hellinum".



Comments


bottom of page