top of page

Aðalfundur Krabbameinsfélagsins Framför í Hverafoldinni 30. apríl 2025 Hólmfríður Sigurðardóttir kosin varaformaður

Updated: 3 days ago

Aðalfundur Krabbameinsfélagsins Framför var haldinn í Hverafoldinni 30. apríl síðastliðinn. 


Helstu tíðindi voru að Hólmfríður Sigurðardóttir, sem stýrir makafélaginu Traustir makar, var kosin varaformaður samhljóða og þó það sé svolítið nýtt að kona taki við slíku embætti í karlafélagi þá var einhugur um að hún væri vel að embættinu komin enda kraftmikil manneskja, sem mun örugglega styrkja starfið. 


Mæting var ágæt en sumir áttu ekki heimangengt. Ársreikningur var samþykktur samhljóðandi auk ársskýrslu. Fram kom að reksturinn er traustur. Lagabreytingar voru einnig samþykktar en þar var helst að og lagabreyting, sem voru helstar að í 5. grein voru "Grunnur að starfsemi félagsins er starf stuðningshópa, starfræksla félagsmiðstöðvarinnar Hellirinn. Einnig kynningar og fræðslustarf."

Einnig var 6. grein breytt þannig að "Stjórn er skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera og fjórum meðstjórnendum sem að jafnaði eru  oddvitar stuðningshópa.  Varastjórn eru skipuð að minnsta kosti 3 einstaklingum" og jafnframt ákvæðið um takmarkanir á hve lengi menn héldu embætti tekið út.


Guðmundur Páll Ásgeirsson er sem fyrr formaður, Hólmfríður varaformaður, Gylfi Gunnarsson gjaldkeri og Jakob Garðarsson meðstjórnandi en þrír nýjir menn komu inn í aðalstjórn – þeir Finnbogi Gústafsson, Guðmundur Oddgeirsson og Sigurgeir L. Ingólfsson. Í varastjórn voru kosnir Þráinn Þorvaldsson, Henry Granz, Ólafur Arnalds og Gunnar Skagfjörð Gunnarsson.


Guðmundur Hauksson og Hinrik Greipsson luku störfum fyrir félagið og er þeim kærlega þökkuð öflug og vönduð störf í gegnum árin.


Mynd:

Frá vinstri Þráinn Þorvaldsson, Henry Granz, Guðmundur Páll Ásgeirsson, Hólmfríður Sigurðardóttir, Guðmundur Oddgeirsson, Gunnar Skagfjörð Gunnarsson og Stefán Stefánsson framkvæmdastjóri.




Comments


bottom of page